Á döfinni
23.-24. maí 2012 kl. 9-12. Námskeið: Hvað má betur fara á vef stofnunarinnar. Nánari upplýsingar HÉR
15. maí 2012. Morgunverðarfundur með Félagi forstöðumanna, Grænn ríkisrekstur. FRESTAÐ TIL HAUSTSINS.
9. maí 2012. kl. 12-13 Opinn fyrirlestur Hauks Arnþórssonar. "Stjórnmálaþátttaka við eldhúsborðið- fyrirlestur um netlýðræði. Nánari upplýsingar HÉR
2.-3. maí 2012 kl. 9-12. Námskeið: Hvað má betur fara á vef stofnunarinnar. Nánari upplýsingar HÉR
26. apríl 2012 kl. 12-13. Opinn hádegisfundur. Áhrif tillagna stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá á stjórnsýslu og stjórnskipan. GLÆRUR af fundinum
25. apríl 2012. Morgunverðarfundur með Félagi forstöðumanna og fjármálaráðuneytinu. Störf og starfsumhverfi forstöðumanna ríkisstofnana. GLÆRUR
20. apríl- 18. maí Þjálfunarnámskeið við að leysa úr málum sem varða ráðningu og starfslok opinberra starfsmanna á lagalega réttan hátt. Nánari upplýsingar HÉR. Skráning HÉR.
17. apríl 2012 kl. 14:00-15:30. Málþing Heilsufar, líðan og aðstæður eldri borgara- niðurstöður nýrra rannsókna. Nánari upplýsingar HÉR Skráning HÉR
13. apríl 2012. Málþing Stjórnarráð 21. aldarinnar með forsætisráðuneytinu. Nánar auglýst síðar.
8. mars 2012 kl. 8.30-12.30. Námskeið: Framkvæmd og túlkun upplýsingalaga nr. 50/1996. Kennari: Kjartan B. Björgvinsson lögfræðingur Skráning HÉR Nánari upplýsingar HÉR
7. mars 2012. Námskeið: Ráðning og starfslok starfsmanna hjá ríki og sveitarfélögum kl 8:30-17. Kennari: Kjartan B. Björgvinsson lögfræðingur Skráning HÉR Nánari upplýsingar HÉR
29. febrúar 2012 kl. 12:15-13:15 í lögbergi st. 103. Opinn fyrirlestur: Að skapa samhljóm: Geta stjórnmálaleiðtogar mótað siðferðisgildi fólks. Fyrirlesari Dr. Jaime Napier, kennari við sálfræðideild Yale University. Auglýsing
22. og 23. febrúar 2012 kl. 13-17. Námskeið: Lagarammi og stjórnkerfi íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Kennari Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðingur í velferðarráðuneytinu. Skráning. Frekari upplýsingar
15. febrúar 2012. Námskeið: Saga, stofnanir og ákvarðanataka innan ESB. Kennari Baldur Þórhallsson, prófessor. Upplýsingar Skráning
25. janúar 2012: Opinn fyrirlestur Robert Wade Oddi stofa 101 kl. 15:30-17:00 Auglýsing GLÆRUR
25. janúar 2012: Ráðstefna um fjárlagaferlið með Félagi forstöðumanna ríkisstofnana kl. 8:00-12:00 í Grand hótel Reykjavík. GLÆRUR
23. janúar-29. febrúar. 6 vikna námskeið í stjórnsýslurétti. mánudaga og miðvikudaga kl. 14-16. Nánari upplýsingar. Betur auglýst síðar. Skráning HÉR
12. desember: Opinn hádegisfundur: Var Jón forseti með og á móti ESB? Hagnýting á minningu Jóns Sigurðssonar í stjórnmálum. kl. 12-13 í Odda 101 Frekari upplýsingar
22.nóvember: Málþing: Hjúkrunarheimili framtíðarinnar - heimilisfólk, aðbúnaður, þjónusta kl. 13:30-16:00 á Grand Hótel Reykjavík Pdf: Dagskrá Nánari upplýsingar GLÆRUR
4. nóvember: Íslensku kosningarannsóknirnar 1983-2009. Opnun gagnagrunns og nýjar rannsóknarniðurstöður. Dagskrá
3. nóvember. Ráðstefna um nýsköpun í opinberum rekstri 3. nóvember á Grand hótel Reykjavík frá kl. 8.30. Nýsköpunarverðlaun, opnun vefsíðu og fyrirlesari frá OECD. Dagskrá hér á pdf formi.
Upptökur og Glærur ráðtstefna, glærurmálstofa1, glærurmálstofa2
26. október. Opin ráðstefna Aðstæður fatlaðs fólks: Aðbúnaður, þjónusta, viðhorf, líðan, sjálfræði.kl. 13.00-16:45 í Hörpu, Norðurljósasal. GLÆRUR Nánari upplýsingar .
14. október: Opið málþing kl. 13:15-15:00"Þingræði á Íslandi í 100 ár. Uppruni, eðli og inntak þingræðis-framkvæmd þingræði á Íslandi. Stofa 105 Háskólatorgi Nánari upplýsingar GLÆRUR
13. október: Námskeið, Saga, stofnanir og ákvarðanataka innan ESB kl. 13-17 í Lögbergi st. 101 HÍ. Nánari upplýsingar og skráning HÉR
21. september. Morgunverðarfundur kl. 8-12. Hvað er framundan í opinberum rekstri?- Staðan, horfurnar, stefnan og áherslurnar Hvaða áhrif hefur efnahagslegur samdráttur haft á íslenskt samfélag? Glærur
14. september Opinn afmælisfyrirlestur kl. 12:10-13:45. "Hvernig má stuðla að betri stjórnmálum? "Designing a Better Politics?" Nánari upplýsingar
25.-27.ágúst: Evrópsk ráðstefna stjórnmálafræðinga ECPR.
1. júní: Hvaða áhrif hefur efnahagskreppan haft á félagslegt traust og félagsleg tengsl á Íslandi- Katarzyna Growiec Nánari upplýsingar
17.-19. maí: Námskeið "Rafræn stjórnsýsla-möguleikar til umbreytinga á starfsemi stofnana." Nánari upplýsingar Skráning
28.apríl: Morgunverðarfundur kl. 8-10 "Hvernig geta stjórnendur náð betri árangri í innkaupum? Skráning GLÆRUR
7. apríl: Opinn fundur með forystumönnum stjórnmálaflokkanna um Icesave kl. 12-13.15 í stofu 105 Háskólatorgi UPPTAKA AF FUNDINUM AF VEF RÚV
5. apríl: Opið málþing "Hvernig ber að standa að ráðningu í æðstu störf innan stjórnsýslunnar? kl. 15-17 stofu 5 Háskólatorgi. Auglýsing ppt Glærur
31. mars: Opinn fyrirlestur "Icesave -samþykkt eða synjun. Hver er áhættan? Lee Buchheit. Auglýsing pp
24. mars: Hádegisverðarfundur kl. 12-13 á Háskólatorgi stofu 105 "Í kjölfar hrunsins: Hvernig höldum við yfirsýn í miðri atburðarásinni?" Auglýsing pdf GLÆRUR Mark Blyth af fundinum.
23. mars: Morgunverðarfundur kl. 8-10 á Grand hótel Reykjavík"Hvernig er staðið að mati og mælingum á árangri í ríkisrekstri". Nánari upplýsingar og glærur.
17. mars: "Stjórnun breytinga- hagnýtt námsskeið" fyrir stjórnendur í opinberum stofnunum fimmtudaginn 17. mars kl. 13-17 í Námu, húsnæði Endurmenntunarstofnunar HÍ. Nánari upplýsingar. Skráning
15. mars: "Virkni, afþreying, þátttaka" Málþing um nýsköpun og rannsóknir um bætt heilbrigði og virkni eldri borgara þriðjudaginn 15. mars kl. 13.30-16 í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð, stofa Skriða. Glærur Upptaka fyrri hluti Upptaka seinni hluti (gæti þurft að bíða í nokkrar mínútur áður en það er hægt að spila)
7. mars: Opinn málfundur "Eru þjónustusamningar ekki að virka'" kl. 12-13.15 í Lögbergi stofu 101. Upplýsingar
3. mars-8.apríl: Stjórnsýsluréttur fyrir starfsmenn stjórnsýslu ríkisins og stofnana. Einnig opið starfsmönnum sveitarfélaga. Skráning Upplýsingar
25. febrúar: Málþing "Daglegt líf, afkoma og aðstæður öryrkja" kl. 13-16 á Grand hótel Reykjavík. Skráning Upplýsingar
23. febrúar: Morgunverðarfundur kl. 8-10 á Grand hótel Reykjavík "Breyttar hugmyndir um stöðuveitingar og störf stjórnenda í opinberum rekstri". Nánari upplýsingar Skráning GLÆRUR
31. janúar, 2.og 3. febrúar 2011: Rafræn stjórnsýsla - möguleikar til umbreytinga á starfsemi stofnana. Þriggja daga námskeið kl. 13-17
Auglýsing Nánari lýsing Skráning
27. janúar 2011: Morgunverðarfundur kl. 8-10 "Viðbúnaður, fyrirhyggja, traust. Hvernig býr stjórnsýslan sig undir óvænt atvik?" og málþings kl. 10.15-12 "Hvernig er staðið að áhættustjórnun, viðbúnaði og forvirku eftirliti hjá stofnunum ríkisins? Sviðsmyndir." GLÆRUR Frekari upplýsingar og skráning
16.desember 2010: "Skiptir þátttaka almennings máli fyrir sjálfbærni borgarsamfélaga?" Opinn hádegisfyrirlestur. Fyrirlesari Dr. Emmanuel Brunet-Jailly. Auglýsing Upptaka af fundinum
30. nóvember 2010: Morgunverðarfundur kl. 8-10 "Hollusta, traust og starfsandi á tímum breytinga og óvissu- Ráð til stjórnenda og starfsmanna hjá ríki og sveitarfélögum" í samvinnu við FFR. GLÆRUR
15. nóvember 2010 Málþing á Grand hótel kl. 13.30-17: Nýsköpun í öldrunarþjónustu. „Stuðningur við eldri borgara til sjálfstæðra búsetu“ Nánari upplýsingar GLÆRUR
11. nóvember 2010 Námskeið í HÍ kl. 8.30-12.30; Upplýsingaréttur almennings. Framkvæmd og túlkun upplýsingalaga nr 50/1996. Kjartan Bjarni Björgvinsson, lögfræðingur hjá EFTA dómstólnum. Nánar upplýsingar
10. nóvember 2010: Námskeið kl. 10.15-12 á Grand hótel Reykjavík ; Ráðning og starfslok starfsmanna hjá ríkinu. Kjartan Bjarni Björgvinsson, lögfræðingur hjá EFTA dómstólnum. Nánar upplýsingar.
10. nóvember 2010: Morgunverðarfundur kl. 8-10 á Grand hótel Reykjavík "Starfsmannamál ríkisins- er breytinga þörf?" í samvinnu við FFR og Ríkisendurskoðun. GLÆRUR
13. október 2010: Morgunverðarfundur kl. 8-10 "Hvaða lærdóm geta opinberar stofnanir dregið af skýrslum rannsóknarnefndar Alþingis-hverju þarf að breyta í stjórnsýslunni" í samvinnu við Félag forstöðumanna ríkisstofnana (FFR) og Félag stjórnsýslufræðinga. AUGLÝSING GLÆRUR
7. október 2010: Námskeið kl. 13:00-17:00 Samráð á erfiðum tímum. Arndís Jónsdóttir stjórnunarráðgjafi í samvinnu við FFR. Nánar lýsing. Auglýsing
5. október 2010 Opinn fyrirlestur með Heiner Flassbeck í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 12-13.30 "The trade that carried Iceland into trouble" í samvinnu við ASÍ. GLÆRUR
22.september 2010: Málefni fatlaðs fólks á tímamótun-horft til framtíðar. Málþing kl. 13.30-17 DAGSKRÁ Dagskrá (pp) GLÆRUR
21. september 2010: Skál fyrir genunum, peningunum og framtíðinni!" Kynjagreining á skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Kl 12.25-13.15. GLÆRUR
15. september 2010: Hvernig á að bregðast við niðurskurði næsta árs. Hver er stefna ríkisins? Hvað eru stofnanir þess að gera? - Morgunverðarfundur kl. 8-10 Glærur komnar á vefinn.
15. september 2010: Árangursríkar aðferðir í sparnaði í opinberum rekstri. "Margt smátt gerir eitt stórt"- Hvað getum við lært hvert af öðru? Málþing kl. 10.15-12- glærur komnar á vefinn.
16. júní 2010: Nauðsynlegar umbætur í fjármálum hins opinbera Morgunverðarfundur á vegum SA k. 8.30-10
20. maí 2010: UT dagurinn, Fyrir hádegi: Hvernig má standa að nýsköpun í opinberum rekstri og hverju getur hún skilað? GLÆRUR OG UPPTÖKUR
20. maí 2010:UT dagurinn; Eftir hádegi: Horft til framtíðar- Ráðstefna UT dagsins GLÆRUR
25.-30.apríl 2010: Uppgjör, ábyrgð og endurmat:Lærdómar af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. GLÆRUR OG UPPTÖKUR
21. apríl 2010: Málþing um konur, kosningar og stjórnmál GLÆRUR
13. apríl 2010: Námskeið um ráðningu og starfslok hjá ríkinu.
12.apríl - 18. maí 2010: 6 vikna námskeið í stjórnsýslurétti
25. mars 2010: Morgunverðarfundur Betri stjórn á útgjöldum ríkisins: Hverju þarf að breyta? - GLÆRUR
24. mars 2010 Námskeið um samráð á erfiðum tímum
18.mars 2010: Morgunverðarfundur: Hvernig fáum við það besta út úr heilbrigðisþjónustunni?
24. febrúar 2010: Námskeið um samráð við starfsfólks á erfiðum tímum
25. febrúar 2010: Morgunverðarfundur um Breytingastjórnun-ávinningur og áskoranir í opinberum rekstri.

Til stjórnenda í heilbrigðisþjónustu og þeirra sem hafa hug á að hasla sér völl á þeim vettvangi.
Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands í samstarfi við Viðskiptafræðideild, Hagfræðideild og Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands , heilbrigðisráðuneytið, Landspítala háskólasjúkrahús, Landssamband sjúkrahúsa, Félag forstöðumanna sjúkrahúsa og Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu býður upp á nýja námsleið fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu:
Diplóma í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu
NÝ NÁMSLEIÐ HÁSKÓLAÁRIÐ 2010-2011
Umsóknarfrestur fyrir vorönn 2011 er til 30. NÓVEMBER 2010
Skráningargjald í Háskóla Íslands veturinn 2010-2011 er kr. 45.000,-
Frekari
upplýsingar veita Elva Ellertsdóttir, deildarstjóri
stjórnmálafræðideildar s. 5254573 og Ásta Möller, forstöðumaður
stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála s. 5255454/8639307
Markhópur: Námið er ætlað stjórnendum í heilbrigðisþjónustu sem hafa mannaforráð og umtalsverða rekstrarábyrgð svo og þeim sem hafa hug á að hasla sér völl á þeim vettvangi.
Námið er 30 eininga þverfaglegt sérskipulag nám á meistarastigi, samsett úr námskeiðum úr fjórum deildum HÍ. Það samsvarar misserislöngu námi, en getur tekið heilt ár samhliða starfi. Því lýkur með diplóma skírteini og er námið að fullu metið kjósi nemandi að ljúka meistaranámi MPA. Inntökuskilyrði eru BA/BS gráða eða ígildi þess (nánari upplýsingar um námið*).
Markmið námsins er að efla nemendur sem stjórnendur með sérstakri áherslu á viðfangsefni stjórnenda í heilbrigðisþjónustu og starfsumhverfi hennar m.a. stjórnsýslu og lagaramma sem hún starfar eftir. Nemendur öðlist þekkingu á kenningarlegum bakgrunni og hagnýtri notkun helstu stjórnunaraðferða sem notaðar eru hjá hinu opinbera og í heilbrigðisþjónustu, bæði almennar og sértækar stjórnunaraðferðir m.a. á sviði mannauðsstjórnunar, fjárreiðustjórnunar, áætlanagerðar og forystufræða, auk beitingu aðferða heilsuhagfræðinnar og lýðheilsufræða. Kynntar verða nýjustu straumar og stefnur í stjórnun heilbrigðisstofnana.
Þeir sem hafa ekki lokið grunnnámi við Háskóla Íslands þurfa að skila
inn staðfestu afriti af prófskírteini á skrifstofun
stjórnmálafræðideildar, Gimli við Sæmundargötu, 101 Reykjavík
Nýtt nám- NÁNARI UPPLÝSINGAR
Diplóma í stjórnun og rekstri fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu
Executive diploma in public administration for health administrators
Diplómanám í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu er þverfaglegt nám í samstarfi Stjórnmálafræðideildar, Viðskiptafræðideildar og Hagfræðideildar innan Félagsvísindasviðs og Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands annars vegar og ýmssa stofnana og félaga stjórnenda innan heilbrigðisþjónustunnar hins vegar. Samráðs og samstarfs verður leitað við erlenda aðila á sviði stjórnunar, stjórnsýslu og heilbrigðismála.
Námið er ætlað stjórnendum í heilbrigðisþjónustu sem hafa mannaforráð og umtalsverða rekstrarábyrgð svo og þeim sem hafa hug á að hasla sér völl á þeim vettvangi. Inntökuskilyrði eru BA/BS gráða eða ígildi þess.
Markmið námsins er að efla nemendur sem stjórnendur með sérstakri áherslu á viðfangsefni stjórnenda í heilbrigðisþjónustu m.a. þann lagaramma sem hún starfar eftir. Nemendur öðlist þekkingu á kenningarlegum bakgrunni og hagnýtri notkun helstu stjórnunaraðferða sem notaðar eru hjá hinu opinbera og í heilbrigðisþjónustu, bæði almennar og sértækar stjórnunaraðferðir m.a. á sviði mannauðsstjórnunar, fjárreiðustjórnunar, áætlanagerðar og forystufræða, auk beitingu aðferða heilsuhagfræðinnar og lýðheilsufræða. Kynntar verða nýjustu straumar og stefnur í stjórnun heilbrigðisstofnana.
Umfang og tímasetningar: Námið er 30 eininga nám á meistarastigi, sem samsvarar misserislöngu námi, en getur tekið heilt ár samhliða starfi. Námið lýkur með diplóma í stjórnun og rekstri heilbrigðisstofnana. Hægt er að hefja námið hvort sem er að hausti eða um áramót. Tvö námskeið eru tekin á hvoru misseri, alls fjögur námskeið. Sum þeirra standa til boða sem fjarnámskeið. Eitt námskeið, Akademía fyrir framtíðarstjórnendur heilbrigðisstofnana, er haldið í apríl/júní ár hvert. Hún er tekin í þremur til fjórum lotum með verkefnum á milli og þar koma saman þeir sem hefja jafnt nám á haust- og vorönn. Akademían er eingöngu fyrir nemendur í diplomanámi fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu og eru viðfangsefnin valin í samráði við samstarfsaðila námsins og eiga m.a. að endurspegla það sem er efst á baugi í stjórnun heilbrigðisstofnana. Erlendir fræðimenn munu flytja fyrirlestra á námskeiðinu. Markþjálfun er fyrir hvern og einn nemanda.
Námskeið: Námið samanstendur af fimm námskeiðum. Þrjú þeirra eru skyldunámskeið og er þar af bundið val á milli tveggja námskeiða, opinberrar stjórnsýslu og stjórnsýsluréttar fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana. Hin tvö skyldunámskeiðin eru inngangur að rekstri og Akademía fyrir framtíðarstjórnendur í heilbrigðisþjónustu. Valnámskeið eru tvö og geta nemendur valið milli 10 námskeiða úr þeim fjórum deildum sem eru í samstarfi um námið. Námskeiðin spanna ýmis stjórnunarfræðileg viðfangsefni m.a. á sviði stjórnunar heilbrigðisstofnana, gæðastjórnunar, mannauðsstjórnunar, fjárreiðustjórnunar, forystu- og breytingastjórnunar, verkefnastjórnunar og stefnumiðaðrar stjórnunar, auk námsskeiða í heilsuhagfræði og lýðheilsu.
Uppbygging námsins :
A. Skyldunámskeið (18e):
1. Bundið val milli námskeiða í opinberri stjórnsýslu (6e) ( OSS111F– haust ) og stjórnsýsluréttar fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana (6e) (OSS204F - vor)
2. VIÐ103F Inngangur að rekstri (6e)
3. Akademía fyrir framtíðarstjórnendur í heilbrigðisþjónustu (6e)
a. Lagarammi og stjórnkerfi íslenskrar heilbrigðisþjónustu og heilbrigðissiðfræði
b. Gæðavísar í heilbrigðisþjónustu
c. Framtíðarstjórnendur og nýjar stjórnunaraðferðir í heilbrigðisþjónustu (m.a.Lean management, áhættustjórnun og áhættugreining og framleiðslumælikerfi)
d. Heilbrigði í alþjóðlegu samhengi (Global health)
B. Valnámskeið (12 e) velja tvö af eftirfarandi námskeiðum :
Frá stjórnmálafræðideild
1. OSS112F Forysta og breytingastjórnun í opinberum rekstri-hlutverk stjórnenda (6e)- haust
2. OSS210F Fjármálastjórnun í opinberum rekstri (6e) vor
3. OSS102F Mannauðsstjórnun ríkis og sveitarfélaga (6e) haust ( eða Mannauðsstjórnun frá viðskiptadeild, en ekki hægt að velja bæði námskeiðin)
Frá viðskiptafræðideild
1. VIÐ210F Stefnumiðuð stjórnun (6e)- vor
2. VIÐ201F Verkefnastjórnun og ráðgjöf (6e) vor
3. VIÐ102F Mannauðsstjórnun (6e)- haust ( eða Mannauðsstjórnun ríkis og sveitarfélaga frá stjórnmálafræðideild, en ekki hægt að velja bæði námskeiðin)
Frá hagfræðideild
1. HAG107F Heilsuhagfræði I (6e) haust
2. HAG210F Þættir í heilsuhagfræði (6e)- vor
Frá heilbrigðisvísindasviði
1. LÝÐ101F Lýðheilsa: Vísindi, stjórnmál, forvarnir (6e) haust
2. LÝÐ203F Áhrifavaldar heilbrigðis – (6 e) forvarnir - vor